| Brúðkaup |
|
Það verður enginn svikinn með brúðkaupsveislu í Hlégarði. Á brúðkaupsdaginn þarf allt að ganga snuðrulaust fyrir sig og við sjáum til að brúðkaupsveislan sé yndisleg upplifun. Brúðksveislur eru jafn fjölbreyttar eins og þær eru margar og geta verið allt frá kaffi- og kökuhlaðborði í síðdeginu að því að vera samsettur matseðill með gómsæta rétti framreidda á diskum með brúðkaupstertur og meðfylgjandi í eftirrétt. Við bjóðum uppá glæsilegar brúðkaupstertur í mörgum stærðum og gerðum. Salirnir okkar taka 300 manns sitjandi eða 400 manns standandi. Þeir eru skemmtilega skipulagðir og með stórum hringborðum má fylla vel uppí rýmið jafnvel þó fjöldinn telji ekki nema tæplega 100 manns. Við getum haft milligöngu með að útvega skemmtikrafta, hljómsveitir, veislustjóra, hljóðkerfi og annað sem þarf til að sníða veisluna að þínum óskum. Við sendum líka frá okkur veislur sé þess óskað og skiptir fjöldinn þá engu máli. Okkar tillögur að brúðkaupsveislum:
|