Í Hlégarði bjóðum við uppá tvo samliggjandi sali (hægt að loka á milli). Stóri salurinn tekur allt að 200 manns í sæti. Stórt og rúmgott svið er í salnum og búningsaðstaða er undir því. Salurinn hentar vel í allar tegundir af veislum og samkomum. Litli salurinn tekur allt að 90 manns í sæti. Inn af honum er glæsileg setustofa með leðursófasettum og fallegri umgerð. Stór bar er á milli setustofu og litla sals.
Húsið er mjög skemmtilegt allt opið, og tekur það þá 250 manns í sitjandi eða 350-400 í standandi samkvæmum. Stór konsertflygill er á sviði í stóra sal og píanó í þeim litla. Hljóðkerfi fyrir talandi mál fylgir húsinu.