Hlégarður
| Hlégarður |
|
Hlégarður er vel staðsett veitinga- og veisluþjónusta í hjarta Mosfellsbæjar. Hlégarður var byggður 1951 og hefur því lengi þjónað bæjarbúum sem og gestum allstaðar frá. Húsið stendur við Vesturlandsveg á fallegum og skjólgóðum stað. Stór vel ræktaður garður umlykur húsið og stórt bílastæði stendur fyrir framan og við hliðina á húsinu. Þegar inn kemur er stórt anddyri, miðasöluhús og þrjár snyrtingar fyrir dömur, herra og fatlaða. Innangengt er úr anddyri í báða sali hússins: Stóri salur - Þar er hátt til lofts, gott gólf, pallur og svalir, stórt svið og stórir gluggar sem vísa út í garð. Litli salur - Þar er innangengt bæði í stærri salinn og glæsilega setustofu með útsýni að sjálfri Esjunni. Þvert í gegn um setustofu og inn í litla sal liggur stór bar. Á hæðinni er fullkomið veislueldhús, starfsmannaaðstaða og skrifstofur. Í kjallara er búningsaðstaða niður af sviði og snyrtingar. |